Heim

|

Fyrirtækið

|

Lausnir

|

Portfólíó

| Hafa Samband  
 
 
 
 
 



 
 

Um Fyrirtækið Okkar

 
 
 

 
 

Fyrirtækið OrangeWebsite var stofnað í Reykjavík árið 2008 af Henri K. Johannes. Aðalstefna fyrirtækisins er að hjálpa litlum fyrirtækjum að kynnast veraldar vefnum og hvernig hægt sé að nota hann. Starfsfólk okkar samanstendur af hæfileikaríkum forriturum og hönnuðum sem hafa þekkingu á tísku nútímans þegar kemur að vefhönnun og notandavænu viðmóti. Við bjóðum uppá almennilega þjónustu og almennileg verð.
 

 

 

Árangur okkar er góður og er svo vegna samvinnu okkar á milli jafnt sem viðskiptavinarins. Við skiljum að fyrirtækin eru ólík eins og þau eru mörg, og þurfa því ólíkar lausnir sem henta viðkomandi fyrirtæki. Starfsfólk okkar stofnar til fundar við viðkomandi eftir að verki er lokið til að tryggja að viðskiptavinurinn sé sáttur með það verk sem hannað var.

Þegar þú hefur samband við okkur, þá ertu í beinu sambandi við þann starfsmann sem sér um verkið þitt, ekki við þjónustufulltrúa eða sölufulltrúa. Með þjónustu okkar fylgir 30-daga skilafrestur til að tryggja að viðskiptavinur sé sáttur.


 

 

 

 
   

 

 

Copyright 2009 © OrangeWebsite. Allur réttur áskilinn. Vefpóstur: sales@orangewebsite.com